Úrslit úr móti í Reykjaneshöll
5. flokkurinn stóð sig vel á mótinu í Reykjaneshöll um helgina.
B liðið sigraði og fékk sinn annan bikar á tímabilinu, fylgdu þar með eftir sigrinum á Jólamótinu. Mjög skemmtilegt lið þar á ferð sem hefur varla tapað leik í manna minnum.
C liðið varð í öðru sæti á eftir ÍA á markamun, munaði 3 mörkum á að okkar strákar hefðu fengið annan bikar.
D liðið stóð sig ágætlega en þar voru nokkrir nýjir strákar. Þeir lentu illa í nokkrum 6. flokks strákum en unnu þó tvo leiki af fimm.
A liðið tapaði gegn FH 3-0, Keflavík 2-1 og Njarðvík 2-0, gerði 3-3 jafntefli við Skagamenn og sigraði Reyni/Víði 4-0. Þarna vantaði tvo sterka stráka þannig að með fullmönnuðu liði má búast við meira af þeim. Þarna eru 3 strákar á yngra ári í byrjunarliði.
En B liðið er ákaflega skemmtilegt og hefur nú unnið bæði mótin sem það hefur tekið þátt í og sigrað mikið af sterkum liðum. Það verður gaman að fylgjast með þeim nú þegar þeir eru komnir á bragðið.
Kv.
Daði
