Humlakvöld 18. febrúar
Næstkomandi föstudag, þann 18. febrúar, mun Meistaraflokkur karla standa fyrir Humlakvöldi í salnum á Ásvöllum frá klukkan 20:00 01:00. Stuðningsmenn, félagar, áhugafólk um flokkinn og aðrir hressir sem hafa áhuga á að gera sér glaðan dag í góðra félaga hópi eru hvattir til að mæta. Svalandi humladrykkir verða til sölu á viðráðanlegu verði og verður allur ágóði af þeirri sölu notaður til að fjármagna utanlandsferð flokksins til Spánar í lok mars. Við lofum óvæntri uppákoma þegar líður á kvöldið.
