Mikil og góð mæting var á opinn fund sem haldinn var á vegum knattspyrnudeildar í gærkvöldi og komu fram margar áhugaverðar tillögur að framtíðarskilpulagi Ásvallasvæðisins.
Annar opinn fundur vegna skipulagsmála verður haldinn þriðjudaginn 26. okt. kl. 19:30 á vegum aðalstjórnar félagsins. Mikilvægt er að allir velunnarar knattspyrnudeildarinnar mæti á þann fund og kynni sér framtíðaráform í skipulagsmálum félagsins.