Komnir upp úr riðlinum og Hilmar á skrið

Það er langt síðan síðasta frétt kom af leikjum frá öðrum flokk. Föstudaginn 20. ágúst spiluðum við við Sindra frá Höfn á Hornafirði. Hilmar E fór á kostum og skoraði ekki meira né minna en 7 mörk. Leikurinn endaði 12-0 okkur í vil og hin mörkin voru eftirfarandi: Guðjón 2, Hilmar Geir 2 og Andri.
Þriðjudaginn eftir var komið að leika við Aftureldingu á Ásvöllum. Hilmar ætlaði bara ekki að hætta að skora og gestirnir þurftu aftur að sækja boltann 7 sinnum í netið eftir hann og 14 sinnum í heildina. Hin mörkin skoruðu: Andri 3, Hilmar Trausti 2, Bjössi og Hlli G.

Þá var komið að leik kvöldsins í Grindavík og okkur dugaði eitt stig í þeim leik til að vera öruggir upp í B riðil. Við vissum að þetta yrði baráttuleikur og að ekkert yrði gefið eftir. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af leiknum skoruðum við fyrsta markið. Hilmar Trausti gaf góða stungusendingu á Andra sem sólaði markmanninn og skoraði. Svona korteri seinna átti Bjarki einnig mjög góða stungusendingu á Andra sem skaut framhjá markmanninum og kom Haukum í 2-0. Þannig var staðan í hálfleik. Í byrjun seinni hálfleik virtist semvið ætluðum að gefa eftir og komust Grindvíkingar nokkrum sinnum nálægt því að skora. Það gerðist þó ekki og í staðin skoruðum við þriðja markið. Hilmar Trausti átti fast skot fyrir utan teig sem markmaðurinn átti erfitt með að halda og Hilmar E fylgdi vel á eftir. Fáeinum mínútum síðar átti Ryan einnig fast skot fyrir utan teig. Aftur var Hilmar á ferðinni og fylgdi aftur vel á eftir og kom okkur í 4-0. Hans 16. mark í þrem leikjum. Á þessum tíma áttu skiptingar sér stað. Binni kom inn fyrir Dag, Arnar fyrir Davíð, Guðjón fyrir Jonna, Guðbjörn fyrir Ryan og Elli fyrir Hilmar Trausta. 10 mínútum fyrir leikslok átti Guðbjörn góða sendingu á milli varnarinnar og Andri þurfti aðeins að senda boltann framhjá markmanninum. Lokastaðan, 5-0.

Byrjunarlið:
Mark: Beggi,
Vörn: Dagur, Bjarki, Pétur og Davíð
Miðja: Hilli G, Ryan, Hilli T og Jonni
Sókn: Andri og Hilli E

Inná komu:
Guðjón (Jonni), Binni (Dagur), Addi (Davíð), Guðbjörn (Ryan), Elli (Hilli T)

Mörk:
Andri 3, Hilli E 2