Þetta var fyrsti leikur okkar frá því að við komum frá Englandi. Við flugum til Egilsstaða, en leikurinn var færður til Eskifjarðar svo við keyrðum með rútu þangað. Við vorum staðráðnir í að sigra þennan leik því við ætlum að reyna að fara taplaust í gegnum þennan riðil. Við byrjuðum þó ekki leikinn fyrr en í seinni hálfleik. UÍA menn voru mikið ákveðnari en við og uppskáru með marki um miðjan fyrri hálfleik með skoti frá miðju. Binni markvörður stóð aðeins of framarlega og las boltann illa. Annars mjög gott skot. Við áttum þó nokkur færi, meðal annars 2 eða 3 einn á móti markmanni, en það nýttist ekki. Það var ekki fyrr en komið var yfir venjulegan leiktíma sem við skoruðum. Brotið var á Andra í teignum og Hilmar G skoraði úr vítaspyrnunni. 1-1 í hálfleik.
Ein skipting var gerð í hálfleik, Elli fór út af og Pétur kom inn. Pétur fór á miðjuna og Dagur í bakvörð. Það var eins og allt annað lið var mætt í seinni hálfleik. Hilli E skoraði eftir sendingu frá nafna sínum Hilla G. Andri kom sér næst á blað með því að skora eftir stungusendingu frá Hilmari Geir. Andri skoraði síðan aftur stuttu seinn eftir að hafa fylgt eftir skoti frá Hilla G sem markmaðurinn varði. Við héldum áfram að sækja og nokkrum mínutum seinna var komið að Pétri. Hann átti ágætt skot rétt fyrir utan teig vinstra megin sem lenti í varnarmanni og þar með missti markmaðurinn af boltanum og hann fór í hægra hornið. Guðbjörn kom síðan inná í staðin fyrir Jonna á hægri kantinum. Við hættum ekki að pressa og eitt skiptið fékk markvörðurinn sendingu frá varnarmanni og Hilli G fór á móti honum. Markmaðurinn reyndi að skjóta boltanum í burtu en hann hitti Hilla og boltinn fór í markið. Staðan orðin 6-1 okkur í vil. Enn og aftur var Hilmar Geir á ferð og lagði upp þriðja markið fyrir Andra sem skoraði með tánni nokkrum metrum frá markinu. Stuttu seinna var brotið á Adda á miðjum vellinum, Addi var ekki sáttur með það og sparkaði mótherjan niður eftir að búið var að flauta og fékk því verðskuldað rautt spjald. Við gerðum nokkrar skiptingar eftir þetta. Guðjón kom inn í staðinn fyrir Hilmar Geir, Bjössi og Ari komu síðan fyrir Andra og Hilmar E. Nokkrum mínútum fyrir leikslok fékk Pétur síðan stungusendingu frá Guðjóni og skoraði af öryggi. Tveir UÍA menn fengu síðan rautt spjald, einn fyrir leikslok og einn eftir leik. Lokastaðan var því 8-1 okkur í vil. Einnig mætti taka fram að Binni var í markinu í fjarveru begga sem er brákaður og hann stóð sig einkar vel.
Byrjunarlið:
Mark: Binni
Vörn: Elli, Davíð, Bjarki og Addi
Miðja: Hilli E, Dagur, Hilli T og Jonni
Sókn: Hilli G og Andri
Inná komu:
Pétur (Elli), Guðbjörn (Jonni), Guðjón (Hilli G), Bjössi (Andri), Ari (Hilli E)
Mörk:
Andri 3, Hilli G 2, Pétur 2 og Hilli E