Á morgun laugardag fer fram síðasti leikur mfl.kv á íslandsmótinu í sumar. Þá fáum við HK/Víking í heimsókn. Þetta er kveðjuleikur erlendu leikmannana okkar, en Jennifer Lynn Crawford, Svetlana Prodanovic og Tatjana Safranj halda af landi brott um næstu helgi. Það er því von okkar að Haukamenn fjölmenni á völlinn og styðji við bakið á stúlkunum í þessum síðasta leik sumarsins. Sá stuðningur sem við höfum haft hefur verið ómetanlegur. Með von um góða skemmtun. Áfram Haukar !