Í gær tóku Haukar á móti UMFB í næstsíðasta leik liðsins á íslandsmótinu. Það sem helst bar til tíðinda þennan dag er að hita og markamet var slegið. Hitinn setti sitt mark á leikinn en þó ekki meira en það að liðið bætti markamet sitt. Leiknum lyktaði með 11-0 sigri heimastúlkna eftir að staðan hafði verið 4-0 í hálfleik. Mörk Hauka skoruðu Tatjana 2, Þórdís 2, Bjarney 2, Katrín Ýr 2, Jennifer 1, Linda 1 og Lena 1. Mörk Lindu og Lenu voru þeirra fyrstu í sumar. (til lukku) Maður leiksins var engin önnur en Þórdís Pétursdóttir og óskum við henni til hamingju með tilnefninguna. Næsti leikur meistarflokks kvenna og jafnframt sá síðasti á Íslandsmótinu í sumar verður gegn HK/Víking næstkomandi laugardag 14.ágúst kl.14:00 á Ásvöllum.