Verktakafyrirtækið Heimir og Þorgeir ehf. bjóða öllum á leik Hauka og HK í 1. deild karla mánudaginn 9. ágúst kl. 19:00.
Nú þegar sex umferðir eru eftir í 1. deild karla getur í raun allt gerst. Haukar sitja á botni deildarinnar með 10 stig en liðið í öðru sæti deildarinnar er með 19 stig þegar 18 stig eru eftir í pottinum.
Máudaginn 9. ágúst munu Haukar mæta HK, sem er í 3 sæti deildarinnar, á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 19:00. Einn af helstu samstarfsaðilum deildarinnar, fyrirtækið Heimir og Þorgeir ehf. ætlar að bjóða öllum frítt á leikinn og er það von Haukamanna að sem flestir mæti á völlinn og hvetji sína menn. M.v. síðustu leiki hjá Haukum er ljóst að liðið á fullt erindi í 1. deildina og spurningin er einöngu hvenær sigurinn dettur Haukameginn.
Það verður heitt á könnunni og gott meðlæti eins og á öllum heimaleikjum Hauka.