Góð ferð á Álftanes
Í gær mánudag lék mfl.kv gegn UMFB (nú UMFÁ) á Bessastaðavelli. Leiknum lauk með sigri okkar stúlkna 1-8, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1-4. Mörk Hauka skoruðu Tatjana 4, Jennifer, Þórdís, Ólöf og Dagbjört. Næsti leikur liðsins er næstkomandi föstudag við HK/Víking og fer leikurinn fram í Fagralundi kl.20:00. Allir á völlinn!
