Jafntefli við Stjörnuna
Lið Milton Keynes Dons FC spilaði sinn fyrsta leik í Íslandsfeð sinni nú í kvöld og var leikið gegn Stjörnunni í Garðabæ. Síðari hluti hópsins kom ekki til landsins fyrr en rétt fyrir leik þar sem tafir voru á flugi frá London.
Leikurinn fór fjörlega af stað og komst MK Dons yfir eftir um 7 mín. leik en Stjörnumenn jöfnuðu nokkru seinna. Leikurinn var lengstum í miklu jafnvægi og lauk honum með jafntefli en Stjörnumenn jöfnuðu með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu seint í síðari hálfleik.
Stewart framkvæmdastjóri MK Dons var ekki allskostar ánægður með frammistöðu sinna manna í þessum leik og megum við Haukamenn reikna með því að þeir mæti ávkeðnari til leiks á móti okkur n.k. miðvikudag en þá leikum við gegn þeim á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 20:00.
Hvet ég alla knattspyrnuáhugamenn til þess að mæta á völlinn því það er ekki á hverjum degi sem ensk atvinnumannalið velja Ísland til þess að hefja undirbúning sinn fyrir komandi tímabil á Englandi.
