Sigur í Eyjum
Við vöknuðum snemma, keyrðum af stað og stoppuðum á Selfossi til að fá okkur að borða. Þaðan keyrðum við síðan á Bakka og flugum þaðan til Eyja. Við vorum seinir af stað og vorum ekki komnir inní klefa fyrr en það voru 50 mínútur í leik. Leikurinn hófst svo klukkan 16:00. Þar sem þetta eru mestu mótherjar okkar í riðlinum og þar er erfitt að fara með 3 stig þaðan mátti búast við erfiðum leik. Við vorum þó með yfirhöndina mest allan leikinn. Við brutum samt sem áður ekki ísinn fyrr en eftir um 25 mínútur þegar Andri skoraði aftur góða sendingu frá Luke, sem átti gott hlaup upp hægri kantinn. Lítið annað gerðist í fyrri hálfleik þó að við fengum nokkur ágæt færi. Staðan í hálfleik var þannig 0-1 fyrir okkur. Þegar aðeins 5 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik jöfnuðu ÍBV með marki einn á móti markmanni. Þetta vakti okkur aðeins því aðeins 5 mínútum eftir þetta mark skoraði Luke með snyrtilegri afgreiðslu eftir að hafa fengið sendingu frá Hilmari E frá vinstri kantinum. 15-20 mínútum eftir það átti Hilmar Trausti skot í varnarmann og boltinn lak í hornið. Staðan því orðin 1-3 okkur í vil. Aðeins fáeinum mínútum síðar skoraði Guðbjörn sitt fyrsta mark í sumar eftir klafs í teignum. Síðasta korterið af leiknum einkenndist af skotum á marki heimamanna og vorum við óheppnir að bæta ekki við mörkum. En lokastaðan var því 1-4 og erum við efstir í riðlinum.
Byrjunarlið:
Mark: Beggi
Vörn: Addi, Pétur, Davíð og Jónas
Miðja: Bjarki, Hilmar T og Hilmar G
Sókn: Luke, Andri og Hilmar E
Inná komu:
Elli (Addi), Gaui (Hilli), Guðbjörn (Andri), Bjössi (Luke), Pálmar (Bjarki).
Mörk:
Andri, Luke, Hilmar T og Guðbjörn
