Tap í bikar eftir hörkuleik
Það var komið að 8 liða úrslitum hjá okkur strákunum í öðrum flokk eftir glæstan sigur gegn Fylki í síðustu umferð. Við vissum að Blikum var búið að ganga vel í síðustu leikjum þannig að við vissum einnig að þetta átti eftir að verða erfiður leikur sem við þurftum virkilega að hafa fyrir. Fyrri hálfleikur hjá okkur var engan veginn nógu góður, né í samræmi sem þjálfarar höfðu lagt upp fyrir okkur. Blikarnir áttu fyrsta orðið og skoruðu þegar þó nokkuð var liðið á leikinn. Addi og Hilmar Trausti lentu í samstuði eftir að hafa báðir reynt að skalla boltann á sama tíma, Addi fór út af meiddur og Elli kom sterkur inn í staðin. Síðan rétt fyrir hlé skoraði Eyþór, fyrrverandi Haukamaður eftir klaufagang í teignum. Við vorum því 2-0 undir í hálfleik. Daði þjálfari öskraði hressilega á okkur í háfleik, skiljanlega. Við mættum því í seinni hálfleik mikið ákveðnari og sterkari. Um miðjan seinni hálfleik skoraði Luke mark eftir klafs í teignum og minnkaði því muninn í 2-1. Nokkrum mínútum síðar var Luke aftur á ferðinni og eftir að markmaðurinn hafði varið frá honum náði hann einhvern veginn boltanum og jafnaði leikinn fyrir okkur. Guðbjörn kom inná í staðin fyrir Jonna og færðu okkur ferskt blóð, einn besti leikur sem ég hef séð hann spila lengi. Síðan meiddist Dagur og Guðjón kom inn í staðin fyrir hann. Rétt fyrir leikslok kom Hilmar Geir síðan inn fyrir Hilmar Emils. Að mati undirritaðs vorum við sterkari aðilinn í seinni hluta leiksins en náðum ekki að setja þriðja markið áður en dómarinn flautaði til loka seinni hálfleiks. Það var því komið að framlengingu í annað sinn í röð. Lítið sem ekkert gerðist í fyrri hálfleik framlengingarinnar og enn var staðan 2-2. Pétur kom síðan inn í staðin fyrir Andra og Guðbjörn fór fram. Þegar 5 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik framlengingarinnar fengu Blikar skyndisókn einn á móti markmanni og skoruðu örugglega úr henni. Þá leit þetta ekki vel út fyrir okkur. En nokkrum mínútum síðar, um 3 mínútur eftir af leiknum, fékk Hilmar Geir boltann fyrir utan teig og markmaðurinn var kominn á móti honum. Hilmar Skaut yfir markmanninn og jafnaði leikinn, 3-3. Stuttu síðar flautaði dómarinn leikinn af og þá var komið að vítaspyrnukeppni. Kastað var upp á og Blikar tóku fyrstu spyrnuna. Þeir skoruðu örugglega úr henni, næst skoraði Ryan fyrir okkur, síðan skoruðu Breiðableik aftur. Luke var síðan heppinn að skora eftir að hafa skotið beint á markið. Þeir komust í 3-2 með því að skora úr næstu spyrnu. Þá var það Hilmar Geir sem átti næsta víti. Hilmar var óheppinn og varði markmaðurinn frá honum. Þar næst komust blikar í 4-2. Hilmar Trausti átti næstu spyrnu fyrir okkur. Einnig var hann óheppinn því það var einnig varið frá honum. Þannig lauk okkur keppni í bikarkeppninni. Næstu leikur okkar er í deildinni og er gegn ÍBV, líklegast erfiðasti deildarleikur sumarsins.
Byrjunarlið:
Mark: Beggi
Vörn: Dagur, Davíð, Bjarki og Addi
Miðja: Jonni, Ryan, Hilmar T og Hilmar E
Sókn: Luke og Andri
Inná komu:
Elli (Addi), Guðbjörn (Jonni), Guðjón (Dagur), Hilli G (Hilmar E), Pétur (Andri)
Mörk:
Luke 2, Hilmar G
Vítaspyrnukeppnin:
Luke, Ryan
