Sigur á Hornafirði
Við vorum mættir á Hornafjörð 2 tíma fyrir leik eftir um 6 tíma keyrslu. Það var heldur hvasst í veðri í fyrri hálfleik, en versnaði þó í seinni. Þar sem þjálfari okkar, Daði, var að taka út annan leikinn sinn af tveimur vegna þess að hann fékk rautt spjald í síðasta leik liðsins á síðasta tímabili, var það Bjarki Jónsson sem var þjálfari liðsins. Bjarki gat ekki spilað vegna aðgerðar á endajaxli. Daði sat þó í stúkunni og studdi vel við bakið á okkur. Leikurinn byrjaði heldur rólega en við höfðum þó yfirhöndina mest megnið af fyrri hálfleik þrátt fyrir vel spilandi lið Sindra. Við skoruðum síðan fyrsta mark leiksins þegar nokkuð var liðið á hann. Amdri gerði það, skot yfir markmanninn svolítið fyrir utan teyginn, eftir frábæra sendingu frá Hilmari Geir. Hilmar Emils komst síðan á blað með frábærum lágum skalla í fjærhorn eftir sendingu inní frá vinstri kannti, óverjandi fyrir markmanninn. Stuttu síðar tók Ryan hornspyrnu vinstra megin og hitti hún beint á skallann á Andra sem kom okkur í 3-0 þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af hálfleiknum. Sindramenn áttu þó síðasta orðið í hálfleiknum þegar einn þeirra besti maður á vellinum skoraði eftir að hafa sólað flest alla varnamenn okkar með góðu skoti yfir markmanninn. Flautað var til hálfleiks um leið og við tókum miðju.
Við ætluðum að koma ákveðnari til leiks í seinni hálfleik, þó að það gekk ekki alveg sem skildi. Sindri átti fyrsta orðið í seinna hálfleik eins og síðasta í fyrri. Þeir skoruðu eftir klaufaleg mistök í vörninni. Eftir það vorum við heppnir að þeir skyldu ekki jafna okkur, eða jafnvel komst yfir, þökk sé Begga í markinu. Eftir þetta snérum við blaðinu við og Hilmar Geir braut ísinn fyrir okkur í síðari hálfleik með einföldu og vel kláruðu færi einn á móti markmanni. Eftir það voru gerðar nokkrar skiptingar og inn komu Addi og Binni sterkir í vörnina og Guðbjörn í sóknina. Þá skoraði Hilmar Emils mark eftir að markmaður Sindra missti boltann eftir fast skot. Bjössi og Guðjón komu svo inná og stóðu sig með prýði á köntunum. Þannig endaði leikurinn, 5-2 okkur í hag og erum við á toppi C1 deildar með 6 stig eftir 2 leiki.
Byrjunarlið:
Mark: Beggi
Vörn: Dagur, Pétur, Davíð og Jonni
Miðja: Luke, Ryan, Hilmar T og Hilmar E
Sókn: Hilmar G og Andri
Inná komu:
Addi (Dagur), Binni(Jonni), Guðbjörn(Andri), Bjössi(Luke), Guðjón(Hilmar E)
