Fyrsta námskeið knattspyrnuskóla Hauka, sumarið 2004, hefur farið vel af stað. Veðrið hefur leikið við iðkendur í 1. námskeiðsviku og sólin hefur skinið hvern einasta dag. Um 50 krakkar hafa sótt 1. námskeiðið og er meginuppistaða þess aldurshópurinn 5/6 9 ára. Iðkendur hafa glímt á leikrænan hátt við helstu tækniatriði knattspyrnunnar, leikið knattspyrnu í fámennum hópum eða brugðið á leik í fjólbreyttum leikjum og æfingum sem lagðar hafa verið fyrir. Annað námskeið hefst mánudaginn 14. júní og hafa þegar skráð sig um 50 þátttakendur. Nýir iðkendur eru boðnir velkomnir. Skrásetning er á netinu eða á fyrsta námskeiðsdegi í vallarhúsi knattspyrnudeildar á Ásvöllum.
Knattspyrnuskólinn þakkar iðkendum fyrir einstaklega gott samstarf í þeirri viku sem nú er að líða og býður þá velkomna aftur í næstu viku eða síðar í sumar.