Haukar – Grindavík Dominos deild karla fimmtudag kl. 19:15

haukur óskarsGrindvíkingar koma í heimsókn í Schenkerhöllina í dag, fimmtudaginn 3. des. og hefst leikurinn kl. 19:15.

Haukarnir unnu Þór Þ. í síðustu umferð örugglega á útivelli með 18 stigum og náðu að svara eftir slakan heimaleik á móti Stjörnunni í leiknum á undan. Strákarnir spiluðu gríðarlega vel, jafnt í sókn sem vörn. Gott flæði var í sókninni og vörnin grimm.  Haukarnir hafa unnið 5 leiki og tapað þrem og sitja í 3-5 sæti í Dominos deildinni.

Grindvíkingar lágu heima í síðasta leik á móti KR en höfðu þar á undan lagt Þór Þ. í jöfnum og spennandi leik. Grindvíkingar eru með þétt lið og mikla reynslu innan sinna raða. Grindvíkingar hafa unnið 4 og tapað 4 og sitja í 6-8 sæti deildarinnar.

Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið og með sigri geta Haukarnir styrkt stöðu sína við toppinn en Grindvíkingar geta jafnframt komið sér í efri hlutann með sigri.

Við hvetjum því allt Haukafólk til að mæta í Schenkerhöllina og hvetja strákana til sigurs.

Mæta snemma, fá sér börger hjá Gunna.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…