KNATTSPYRNUSKÓLI HAUKA OG LUKA KOSTIC – Skráning hafin

 „Æft eins og atvinnumaður“  

Luka Kostic
Luka Kostic

 Knattspyrnudeild Hauka í samstarfi við knattspyrnuþjálfunar félagið Ask Luka ehf. býður upp á frábær knattspyrnunámskeið á Ásvöllum í sumar fyrir stráka og stelpur á aldrinum 10 til 15 ára, undir yfirskriftinni „æft eins og atvinnumaður“.  Námskeiðin eru hluti af starfsemi íþróttaskóla Hauka sem fer fram á Ásvöllum í sumar.

Á námskeiðunum verður lögð áhersla á grunntækni í knattspyrnu og einstaklingsþjálfum.   Í tengslum við kennsluna verða videofundir þar sem farið verður yfir tækniatriði.  Námskeiðin verða síðan brotin upp með skemmtilegum uppákomum, svo sem heimsóknum atvinnumanna, landsliðsfólks og þjálfara í fremstu röð, og fleira skemmtilegt.

Námskeiðið byrjar á miðvikudaginn 10. júní og stendur yfir í allt sumar eða frá skólaslitum grunnskóla í júní til byrjunar skólaárs í ágúst.  Hvert námskeið nær yfir eina viku, 4 tíma á dag.  Námskeiðin hefjast stundvíslega kl. 9:30, en gert er ráð fyrir að nemendur mæti upp úr 9.  Þeim lýkur kl. 13:25.   Námskeiðin eru eftir atvikum tengd við æfingatíma knattspyrnudeildar.  Hádegismatur er innifalinn í námskeiðs gjaldinu.

Almennt verð fyrir viku námskeið er kr. 12.000.  Boðið er upp á afslátt er keypt eru fleiri en eitt námskeið í einu, sem felur jafnframt í sér systkina afslátt.  Þá eru vikur með frídögum með afslætti.  Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðin eru á heimasíðunum www.askluka.is og síðunni www.haukar.is undir íþróttaskóli Hauka.

Dagur á námskeiðinu gæti verið þannig:

09:30 – grunntækni; 10:30 – einstaklingsþjálfum; 11:30 – videofundur; 12:00 – matur; 12:30 – gestur; 13:00 – skallatennis; 13:25 – lok námskeiðs.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í sumar.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…