Knattspyrnuskóli Luka Kostic – Ask Luka

lukaLuka Kostic er í forsvari fyrir nýtt fyrirtæki Ask – Luka ehf sem býður upp knattspyrnuþjálfun í einstaklingsatriðum bæði fyrir stelpur og stráka. Hefjast fyrstu námskeið nk. sunnudag 8.febrúar og eru skráningar nú þegar hafnar í gegnum vefsíðuna www.askluka.is.

Félagið ætlar að aðstoða unga og metnarðarfulla knattspyrnuiðkendur við að bæta sig tæknilega, námskeiðin eru eingöngu hugsuð til að styrkja leikmenn en hafa ekki truflandi áhrif á leikkerfi eða þjálfun hjá félagsliðunum. Fjöldi leikmanna hefur farið í gegnum Luka prógrammið meðal annars mjög margir af núverandi leikmönnum íslenska A karla landsliðsins.

Luka Kostic er fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu til margra ára, knattspyrnuþjálfara menntun sótti Luka hér á landi (KSÍ), einnig hefur hann sótt margar ráðstefnur um knattspyrnu á vegum UEFA og á vegum landsliðsþjálfara Skandinavíu. Luka hefur langa reynslu af þjálfun en hann hefur m.a. verið landsliðsþjálfari U-17 & U-21, þjálfaði meistaraflokka: Þór A., Grindavík, KR, Víking og Hauka ásamt yngri flokkum KR og Hauka, ásamt einstaklings þjálfun hjá KR. Frá 2009 rak Luka ásamt Magnúsi Gylfasyni fyrirtækið Knattspyrnuþjálfun ehf –  fyrirtæki sem sérhæfði sig í einstaklings þjálfun í  knattspyrnu.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…