Á fimmtudag klukkan 18 fá strákarnir okkar Selfyssinga í heimsókn í næstsíðasta heimaleik þeirra á tímabilinu.
Liðin eru í áttunda og níunda sæti deildarinnar með jafn mörg stig en Haukar eru með betri markatölu.
Með sigri geta Haukar endanlega kvatt falldrauginn.
Þegar þrír leikir eru eftir þá erum við 7 stigum frá fallsæti og er því enn fræðilegur möguleiki á falli.
Haukar hafa gert jafntefli í síðustu tveimur leikjum gegn Grindavík og K.A. á útivelli en unnu síðasta heimaleik gegn K.V.
Mæting á heimaleiki strákanna hefur verið eins og gengi liðsins, svona upp og ofan en núna viljum við klára tímabilið með stæl, bæði í mætingu og úrslitum.
Því eru allt Haukafólk kvatt til að mæta á völlinn og styðja við bakið á okkar mönnum.
Áfram Haukar!!