Risaleikur á laugardag – grill fyrir leik!

Haukar

Haukar komnir í 2. sætið á markatölu eftir frækinn sigur í gærkvöldi á KA fyrir norðan.   Brynjar Ben. og Ásgeir Ingólfs. skoruðu mörk Hauka og Sigmar varði vítin í lokin!  

Spennan í deildinni er í hámarki og nú ætlum við að fjölmenna á Ásvelli á laugardaginn þegar við mætum Víking R. sem er einu stigi á eftir okkur.  Gríðarlega mikilvægur leikur og allur stuðningur við strákana nauðsynlegur.

Leikurinn á laugardag hefst kl. 14.00 en við bjóðum upp á hamborgara og kaldann á vægu verði frá kl. 13.00.   Við verðum í salnum á efri hæðinni.

Sjáumst á laugardaginn!

Áfram Haukar!