Haukar lögðu BÍ/Bolungarvík

HaukarÞað voru ekki frábærar aðstæðurnar sem Haukar og BÍ/Bolungarvík þurftu að spila við í dag en þrátt fyrir sterkan vind og rigningaskúrir af og til tókst liðunum að búa til mikla skemmtun fyrir áhorfendur í leik sem endaði á dramatískan hátt.

Gestirnir voru sterkari fyrstu mínúturnar og var það því nokkuð gegn gangi leiksins þegar Hilmar Rafn Emilsson skoraði fyrsta mark leiksins á 13. mínútu með skoti úr miðjum vítateignum.
Meira var ekki skorað í fyrri hálfleik en gestirnir urðu manni færri þegar Nigel Quashie lét reka sig útaf með rautt spjald fyrir að gefa Ásgeiri Þór Ingólfssyni olnbogaskot. Undirritaður sá ekki atvikið vel en miðað við viðbrögð manna á vellinum í báðum liðum var um réttan dóm að ræða.

Seinni hálfleikur var mjög fjörugur svo vægt sé til orða tekið. Gestirnir í BÍ/Bolungarvík gerðu það sem heimamenn gerðu ekki í fyrri hálfleik og nýttu sér vindinn til fullnustu. Fyrst jafnaði Hafsteinn Rúnar Helgason á 55. mínútu með skoti/fyrirgjöf utan að kanti sem datt í fjærhornið á markinu.

Andri Rúnar Bjarnason skoraði svo eitt af mörkum ársins á Íslandi á 59. mínútu með skoti frá miðju sem hafnaði í markinu, virkilega gott mark sem erfitt er að lýsa nánar.

Loks kom Alexander Veigar Þórarinsson gestunum í 3-1 með skoti úr teignum eftir að varnarmönnum Hauka mistókst að hreinsa almennilega frá markinu. Þetta mark kom á 70. mínútu.

Fáa hefði eflaust grunað að Haukar gætu unnið leikinn á þessum tímapunkti, þrátt fyrir að þeir væru manni fleiri, því fram til þessa hafði vindurinn spilað mikla rullu í leiknum og Haukarnir léku gegn honum í síðari hálfleik.

Ólafur Jóhannesson þjálfari Hauka, gerði hins vegar gríðarlega góðar breytingar á sínu liði á 67. mínútu er hann setti Sigurbjörn Hreiðarsson inná og svo stuttu síðar er hann setti Björgvin Stefánsson inn á. Þessi tveir áttu eftir að breyta miklu fyrir Haukaliðið.

Allt í einu fór Haukaliðið að ógna mun meir og boltinn gekk mun hraðar milli manna og árangurinn lét ekki á sér standa. Fyrst minnkaði Brynjar Benediktsson muninn á 73. mínútu eftir góðan undirbúning Andra Steins Birgissonar.

Hilmar Rafn Emilsson jafnaði svo á 79. mínútu eftir hornspyrnu og Andri Steinn Birgisson tryggði svo Haukum hádramatískan sigur með marki á 93. mínútu er hann fékk boltann utarlega hægra megin á vellinum, lék inn að teig og nelgdi boltanum markið. Glæsilegt mark sem heimamenn fögnuðu vel og lengi, einungis órfáum sekúndum síðar var svo flautað til leiksloka.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/game.php?action=view_article&id=799#ixzz2YTEwSK1i

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…