Haukar efna til veislu á föstudaginn þegar meistaraflokkur karla mætir Grindavík í fyrsta heimaleik sumarsins. Við verðum í salnum á 2. hæð og opnar húsið kl. 18.00 þar sem kokkur knattspyrnudeildarinnar, Sigþór Marteins., mun grilla borgara sem verða seldir á vægu verði. Óli Jó mun fara yfir leikinn með stuðningsmönnum og leikurinn hefst svo kl. 19.15.
Einnig verða úrslit í Vorleiks Getraunaleiks Hauka opinberuð og verða hamborgarar og fleira í boði fyrir þátttakendur Getraunaleiksins. Dagskrárstjórar verða þeir Jón Björn og Siggi Mey.
Okkar menn unnu fyrsta leik sumarsins í deildinni gegn Þrótti en töpuðu gegn Víking R. í bikarnum sl. mánudag.
Grindavík féll úr Pepsi-deildinni eftir síðustu leiktíð og er af mörgum spáð sigri í 1. deildinni ár en við Hauka-menn ætlum svo sannarlega að landa þremur stigum á heimavelli.
Því er afar mikilvægt að Hauka-fólk fjölmenni á völlinn og hvetji strákana til sigurs.
Áfram Haukar!