Haukasigur í fyrsta leik

Haukar

Haukar fóru heim með öll þrjú stigin sem í boði voru í Laugardalnum í dag. Haukar heimsóttu Þróttara heim í fyrstu umferð 1.deildar karla í dag. Það var ágætlega vel mætt á leikinn og ágætis fótboltaveður sem leikmenn beggja liða nýttu sér vel og sýndu lipra takta lungan úr leiknum.

Tvö mörk á tveimur mínútum frá Haukum gerði útslagið í leiknum, en Þróttarar minnkuðu muninn stundar fjórðung fyrir leikslok, en nær komust þeir ekki.

Ásgeir Þór Ingólfsson skoraði fyrsta mark Hauka í 1.deildinni í sumar, skalla mark eftir fyrirgjöf frá fyrirliðanum Hilmari Trausta. Stuttu síðar, átti Ásgeir Þór fyrirgjöf frá svipuðum stað og Hilmar í fyrra markinu, Brynjar Ben. skallaði boltann út í teiginn þar sem Hafsteinn Briem nelgdi boltanum í netmöskvana. Frábært mark frá nýliðanum!

Mörkin hefðu hæglega geta orðið töluvert fleiri í leiknum, seinni hálfleikurinn var virkilega opinn og skemmtilegur og sóknir á báða bóga. Hilmar Geir, Hilmar Rafn, Brynjar Ben. og Guðmundur Sævarsson fengu allir virkilega góð færi til að gull tryggja sigurinn, áður en Þróttarar minnkuðu muninn, Sveinbjörn Jónasson. 

Þróttarar lágu mikið á Haukunum eftir markið, en Haukarnir þéttu sínu varnarlínu og börðust mikið, á lokamínútunum náðu Haukar síðan meira vald á leiknum og sigurinn því í raun og veru, aldrei í hættu.

Frábær úti-sigur í fyrsta leik, þrjú stig í hús. Flestir leikmenn áttu góðan leik. Sigmar í markinu og Ásgeir Þór báru líklega þó af, í leik Haukamanna, með frábæran leik.

Næstu leikir Hauka:

Borgunarbikar karla: Víkingur R. – Haukar 13.maí kl. 19:00 – Víkingsvelli

1.deild karla: Haukar – Grindavík 17.maí kl. 19:15 – Ásvellir

ALLIR Á VÖLLINN – ÁFRAM HAUKAR!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

Haukasigur í fyrsta leik

HaukarHaukar sigruðu í kvöld Fylki í hörkuleik í 1.umferð N1-deildar kvenna 2009-2010 í Fylkishöllinni í Árbænum. Lokatölur voru 25-23 eftir að staðan hafi verið 11-10 í hálfleik Fylki í vil.

Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn HK á laugardaginn næstkomandi klukkan 16:00

Ramune Pekarskyte var að vanda markahæst í liði Hauka með níu mörk, Hanna Guðrún Stefánsdóttir gerði 5 mörk sem og Ester Óskarsdóttir, Erna Þráinsdóttir skoraði 4 og Nínurnar, Nína Arnfinnsdóttir og Nína Björnsdóttir skoruðu 1 mark hvor.+

Hjá Fylki skoraði Sigriður Hauksdóttir 7 mörk, Hildur Harðardóttir 5, Elín Jónsdóttir 4, Sunna María Einarsdóttir 3, Nataly Valencia 2 og þær Tinna Jökulsdóttir og Ela Kowal 1.

Önnur úrslit í kvöld voru þau að Valur sigraði Stjörnuna í Garðabænum í hörkuleik 18-17, Framarar sem er spáð deildartitlinum sigruðu norðanstúlkur í KA/Þór 29-24 en sumir bjuggust nú við stærri sigri og það má kannski búast við því að KA/Þór muni stríða fleiri liðum í deildinni. HK sigruðu svo Víking í Víkinni 28-21.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…