Haukar mæta Víking Reykjavík í 1. deild karla nk. fimmtudagskvöld og hefst leikurinn kl. 20:00 á Ásvöllum. Haukar í horni og aðrir stuðningsmenn, ásamt strákum í 6. og 7. flokki karla og foreldrum þeirra, verða með pylsupartý frá 18.30. Óli Jó mun svo fara yfir leikinn með stuðningsmönnum rétt fyrir leik.
Haukar eru sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig en Víkingur R. er í níunda sæti með 10 stig.
Nú er um að gera að fjölmenna á Ásvelli og hvetja okkar menn til sigurs!