Ellefu frá Haukum æfa með yngri landsliðum

HaukarFrábært starf hefur verið unnið í yngri flokkum Hauka í knattspyrnu síðast liðin ár og sést það sennilega best á þeim fjölda ungra iðkenda frá félaginu sem boðaðir eru á æfingar yngri landsliða í knattspyrnu. Við eigum hvorki fleiri né færri en 11 krakka sem hafa verið boðaðir undanfarið á æfingar og þess ber að geta að enn fleiri krakkar frá Haukum hafa æft sl. ár með yngri landsliðunum en getið er hér. Sannarlega frábært ungt afreksfólk sem við erum stolt af!

U19 karla: Magnús Gunnarsson, Aran Nganpanya, Aron Jóhannsson, Björgvin Stefánsson og Gunnlaugur Fannar Guðmundsson.

U19 kvenna: Kristín Ösp Sigurðardóttir.

U17 karla: Arnar Þór Tómasson og Eggert Georg Tómasson.

U17 kvenna: Hildur Kristín Kristjánsdóttir. 

U16 karla: Hrannar Björnsson og Sverrir Bartolozzi. 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…