ÍR – Haukar á þriðjudagskvöld kl. 19:00

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 5.jpgMeistaraflokkur kvenna leikur við ÍR á ÍR-vellinum á þriðjudag og hefst leikurinn kl. 19:00.

Það hefur gengið vel í síðustu fjórum leikjum hjá Haukum og stúlkurnar spilað vel. Þær hafa í þessum fjórum leikjum skilað tólf stigum í hús og skorað fjórtán mörk en ekki fengið á sig mark. Það er vonandi að þetta góða gengi haldi áfram. 

Fyrri hálfleikurinn í fyrri leiknum við ÍR var markalaus þrátt fyrir nokkur ágæt marktækifæri en það var ákveðið Haukalið sem kom til leiks í síðari hálfleik og skoraði þrjú mörk gegn engu marki ÍR.  Nú verður ÍR á heimavelli en ÍR hefur gengið vel í síðustu tveimur leikjum. Fyrst unnu þær Tindastól heima, 2-1, og síðan gerðu ÍR-stúlkur góða ferð á

Húsavík þar sem þær unnu Völsung 1-0.  Það er því ljóst að Haukastúlkur verða að koma einbeittar og ákveðnar í seinni leikinn gegn sprækum ÍR-stúlkum. 

Við látum nokkrar myndir frá fyrri leik félaganna á Ásvöllum fylgja hér með og hvetjum um leið stuðningsmenn Hauka til að mæta á ÍR-völlinn á þriðjudag og styðja stelpurnar okkar til sigurs á lokasprettinum á Íslandsmótinu.  Þær eru þar í baráttu við Selfoss um efsta sætið í riðlinum en stöðuna og næstu leiki má sjá hér, http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24186.

Áfram Haukar!

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 1.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 2.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 3.jpg 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 4.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 6.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 7.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 8.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 9.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/ir heima. mynd o 10.jpg

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…