Haukar – Selfoss í kvöld, þriðjudagskvöld

Enok EiðssonHaukar og Selfoss mætast í 1.deild karla í kvöld kl. 20:00 á Ásvöllum. Selfysingar og Haukar hafa farið á milli deilda saman undanfarin ár, allt frá því að fara uppúr 2 .deildinni, 1. deildinni og féllu svo saman í fyrra úr Pepsi-deildinni.
Haukar hafa ekki enn innbyrt sinn fyrsta sigur á heimavelli í sumar og hafa einungis fengið fimm stig í síðustu sex leikjum. Selfyssingar eru hins vegar á miklu skriði og hafa unnið síðustu sex leiki sína í deildinni og sitja í 2. sæti með 22 stig, átta stigum fleiri en Haukar.

Dómari leiksins í kvöld er Gunnar Sverrir Gunnarsson en hann dæmdi einmitt leik Hauka og ÍA í 7. umferð þar sem hann ákvað að gefa Skagamönnum vítaspyrnu og hvergi fengu Haukarar afsökunarbeiðni eftir þann leik. Haukar eru nú orðnir vanir því að fá á sig gefnar vítaspyrnur eins og sást berlega í síðsta leik gegn Þrótturum. 

Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni á HaukarTV og hefst útsendingin rétt rúmlega tíu mínútum fyrir leik. Annars hvetjum við að sjálfsögðu alla til að fjölmenna á Ásvelli í kvöld.

Áfram Haukar! 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…