Í dag, 12. apríl á 80 ára afmælisdegi Hauka, mun ný glæsileg sjálfsafgreiðslustöð opna á Ásvöllum. Það verður formaður Hauka, Ágúst Sindri Karlsson ásamt fulltrúum frá N1 sem munu formlega opna stöðina kl. 15.00 í dag. Opnun stöðvarinnar, á 80 ára afmæli Hauka, markar formlegt upphaf samstarfs N1 og Hauka sem felur í sér margvíslegan stuðning við starfsemi Hauka. „Við óskum Haukunum og Hafnfirðingum öllum innilega til hamingju á þessu stórafmælið og hlökkum til að vinna með þeim“, segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1.
Í tilefni opnunarinnar og 80 ára afmælis Hauka verður veittur 10 kr. afsláttur af hverjum eldsneytislítra á nýju N1 stöðinni við Ásvelli á morgun, þriðjudaginn 12. apríl frá kl. 15.00 til miðnættis. Þá munu þeir sem taka eldsneyti á nýju stöðinni fá pylsu og Coke á aðeins 99 kr. á N1 við Lækjargötu, Hafnarfirði í tilefni þessara skemmtilegu tímamóta.