Sigur í fyrsta leik

Meistaraflokkur kvenna í körfubolta hóf keppni í Iceland Express deildinni fyrr í kvöld þegar að þær tóku á móti KR-stúlkum. Það verður að segjast að stemningin hafi verið rafmögnuð en Haukar sigruðu með einu stigi 65-64 og hefndu fyrir töp síðustu tveggja leikja sem einnig voru á móti KR.

KR-stúlkur byrjuð betur á Ásvöllum og höfðu yfirhöndina allan fyrsta leikhluta og var staðan að honum loknum 13-20 fyrir þeim í hag.  Margrét Kara Sturludóttir var sjóðheit í liði KR og gerði 12 stig í leikhlutanum. 

KR hélt forystunni í öðrum leikhlutanum en Haukarnir náðu þó að saxa á forskotið og í hálfleik munaði aðeins einu stigi á liðunum þegar brotið var á Þórunni Bjarnadóttur. Endasprettur Hauka var sterkur í leikhlutanum en þær skoruðu síðustu 14 stig leikhlutans og staðan 33-34 KR í vil.

Seinni hálfleikur var jafn og spennandi og var baráttan í fyrirrúmi.  Haukar náðu að komast yfir í byrjun seinni hálfleiks og eftir það var jafnt á nánast öllum tölum. Staðan  var jöfn eftir þriðja leikhluta 40-40.

Í fjórða leikhluta var ekkert gefið eftir og voru síðustu mínúturnar ótrúlega spennandi. Íris Sverrisdóttir koma Haukunum 4 stigum yfir með tveimur vítum þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Hvorugt liðið náði  að skora fyrr en um 30 sek. voru eftir þegar Hildur setti niður stökkskot og munurinn því orðin tvö stig. Kr-ingar pressuðu og brutu og sendu  Hauka á línuna enda komnir í bónus . Íris Sverrisdóttir setti niður bæði skotin sín og munurinn því aftur orðinn fjögur stig og 12 sek. eftir.  Hildur Sigurðardóttir brunaði upp völlinn og setti niður þrist spjaldið ofan í. KR-ingar brutu aftur, að þessu sinni á Þórunni Bjarnadóttur en hún misnotaði bæði vítaskotin.  Guðrún Gróa náði frákastinu og boltinn barst til Hildar sem náði skoti en það var erfitt og fór ekki ofan í. Haukar sigruðu því með einu stigi eftir æsispennandi lokamínútur.

Atkvæðamestar í liði Haukar voru Íris Sverrisdóttir með 20 stig og Ragna Margrét Brynjarsdóttir með 15 stig og 10 fráköst.