Enn eitt jafnteflið í sumar hjá Haukaliðinu og það annað gegn KR varð staðreynd í gærkvöldi þegar Valgeir Valgeirsson umdeildur dómari leiksins flautaði af leikinn á Vodafone-vellinum í gær. Bæði lið skoruðu þrjú mörk í leiknum.
KR skoruðu það fyrsta eftir aðeins tveggja mínútna leik og skoruðu svo aftur en markið réttilega dæmt af vegna rangstæðu. Haukar skoruðu svo þrjú mörk í röð, fyrst var þar að verki Arnar Gunnlaugsson úr víti, síðan skoraði Hilmar Rafn Emilsson og Guðjón Pétur Lýðsson skoraði svo þriðja markið og staðan 3-1 í hálfleik, Haukum í vil gegn Reykjavíkur Stórveldinu.
Þeir bættu hinsvegar í, í seinni hálfleik þegar Valli Vall. dómari ákvað að gefa þeim eitt stykki vítaspyrnu, Mc’Björgólfur Takefusa lét þig þá falla eftir að fyrirliði okkar Haukamanna lenti í samstuði við Mc’Björgólf. Mc’Björgólfur fór á punktinn og skoraði og síðan jafnaði Guðjón Baldvinsson metin nokkrum mínútum síðar.
Þar við sat og 3-3 jafntefli staðreynd á Vodafone-vellinum. Næsti leikur okkar Haukamanna er í Hafnarfirðinum, já loksins loksins og það gegn Hafnfirsku fimleikastrákunum í FH. Sá leikur er á sunnudaginn og er líklega sjónvarpsleikur svo hann ætti að byrja 20:00 en ítarlega verður fjallað um þann leik í vikunni.