Haukar fá þrjá leikmenn á reynslu
Á næstu dögum munu Haukar fá þrjá erlenda leikmenn á reynslu til sín en eins og kunnugt er opnar félagskiptaglugginn á Íslandi 15.júlí næstkomandi.
Um er að ræða leikmenn frá Slóveníu, Makedoníu og Skotlandi. En þetta staðfesti Andri Marteinsson þjálfari liðsins við Haukar.is í dag.
Að sögn Andra er ljóst að styrkja þarf hópinn fyrir komandi átök ef liðið ætlar sér að halda sér í deild þeirra bestu á Íslandi en mikið hefur verið um meiðsli hjá liðinu í sumar.
En hverjir eru þessir leikmenn?
Fyrst er um að ræða David Kiseljak. Hann er 22 ára leikmaður frá Slóveníu sem getur bæði leikið á miðjunni og sem framherji. David á nokkra leiki með unglingalandsliðum Slóveníu en leikur nú með 3.deildarfélaginu NK Dravograd í Slóveníu.
Aleksander Kuxmanovski er 25 ára leikmaður frá Makedóníu og er hann framherji að upplagi, hann leikur með Macedonia GP í heimalandi sínu.
Síðast en alls ekki síst er Jamie Mcunnie, hann er 27 ára leikmaður frá Skotlandi sem getur leikið bæði sem varnar-miðjumaður og í vörninni. Hann lék á árum áður með Arnari Gunnlaugssyni í Dundee United í Skotlandi en hann á jafnframt 22 leiki með U-21 árs landsliði Skotlands og þar af 15 sem fyrirliði liðsins. Jamie leikur nú með East Fife í Skotlandi.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig þessir leikmenn eiga eftir að standa sig með Haukaliðinu á næstu dögum og vonandi að þeir eigi eftir að auka breiddina sem og spilamennskuna hjá liðinu og þar með að liðið farið að bæta stigum í sarpinn.
Við munum svo á næstu dögum reyna fá það úr því skorið, hvað sé að frétta af meiðsla listanum hjá Haukum þessa dagana.
