Haukar lögðu Víði í æfingaleik

Markamaskínan Arnar Gunnlaugs skoraði fyrsta mark HaukaHaukar unnu öruggan 3-0 sigur á  Víðismönnum úr Garði í síðasta æfingaleik liðsins fyrir Pepsi deildina sem hefst á þriðjudaginn næstkomandi. Haukar byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu fyrsta markið snemma leiks. Það var hinn síungi Arnar Gunnlaugsson sem skoraði markið eftir góðan undir búning Sam Mantom’s, sem var að spila sinn fyrsta leik fyrir Hauka í kvöld eftir að hafa komið til Hauka á láni í vikunni.

 Það var svo Pétur Ásbjörn Sæmundsson sem skoraði annað mark Haukamanna með góðum skalla eftir góða fyrirgjöf frá Hilmari Trausta. Haukaliðið var mun sterkara í leiknum og fóru oft illa með góð færi. Það var svo Jónmundur Grétarsson sem skoraði þriðja og síðasta mark leiksins eftir að hafa fengið góða sendingu inn fyrir vörnina frá Hilmari Trausta.

 Eins og fyrr segir voru Haukarnir sterkari aðilinn í leiknum og gáfu Haukamenn ekki mörg færi á sér. Haukamenn spiluðu vel miðað við aðstæður en spilað var á arfaslökum grasvelli heimamanna.

Sam Mantom spilaði sinn fyrsta leik fyrir Hauka og verður án nokkurs vafa góð viðbót við leikmannahóp Hauka sem er spáð falli hjá öllum fjölmiðlum landsins. Næsti leikur liðsins er gegn KR í Frostaskjóli í 1. umferð Pepsi deildar karla 2010.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…