Fimm Haukastrákar í úrtökum KSÍ um helgina

HaukarUm næstu helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U-17 ára landsliði karla. Haukar eiga þar fimm fulltrúa í þeim hópi. 

Í U-17 ára landsliðinu sem er landslið fyrir þá sem eru fæddir 1994 og seinna eru hvorki fleiri né færri en fimm Haukastrákar. Eiga Haukar flesta fulltrúa í hópnum.

Það eru þeir Magnús Þór Gunnarsson, Gunnar Örvar Stefánsson og Þórður Jón Jóhannesson, Aron Jóhann Pétursson og Arnar Aðalgeirsson.

Við óskum strákunum til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis á æfingunum sem fram fara í Kórnum um næstu helgi.