Haukar búnir að skila inn leyfisgögnum sínum

Haukar„Komnir til að sigra, komnir til að vera …“ sungu Páll Rósinkranz og Haukakórinn um árið.  Haukar hafa skilað leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, fyrir keppnistímabilið 2010.  Þar með hefur helmingur leyfisumsækjenda í efstu tveimur deildum karla skilað, alls 12 félög af 24, en Reynir Sandgerði, sem leikur í 2. deild, hefur einnig óskað eftir því að undirgangast leyfiskerfið. 

Lokaskiladagur þessara gagna er föstudaginn 15. janúar, þannig að leyfisgögnum mun væntanlega halda áfram að rigna yfir leyfisstjórn á næstu dögum.  Fjárhagslegum gögnum er síðan skilað eigi síðar en 20. febrúar.

Þau gögn sem leyfisumsækjendur eiga að skila fyrir 15. janúar snúa að knattspyrnulegum þáttum (þjálfun og uppeldi ungra leikmanna), mannvirkjaþáttum (eignarréttur aðstöðu eða samningur um notkun, aðstaða áhorfenda, fjölmiðla og iðkenda), starfsfólki og stjórnun (starfslýsingar, ráðningarsamningar, menntun og reynsla) og lagalegum forsendum (lagalegur grundvöllur félags).

Minnt er á neðangreint úr leyfisreglugerðinni:

b) Tímamörk ekki uppfyllt.

Ef leyfisumsækjandi uppfyllir ekki sett tímamörk um framlagningu leyfisgagna skal hann sæta viðurlögum.  Við ákvörðun þeirra skal taka mið af því hve alvarlegt brotið er.  Eftirfarandi viðurlögum er hægt að beita:

–  Viðvörun og sekt; við fyrsta brot skal beita dagsektum að upphæð kr 1.500 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 30.000.

–  Áminning og sekt; við ítrekað brot skal skal beita dagsektum að upphæð kr 3.000 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 60.000.

–  Stigatap; við alvarlegt og ítrekað brot er jafnframt heimilt að draga allt að 3 stig frá félaginu í deildarkeppninni.

Ítrekunarkvöð fellur niður ef tímamörk hafa verið uppfyllt í 3 ár samfleytt.

Tekið af: ksí.is

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…