Jóna Sigríður og Tinna Mark í Hauka

HaukarÍ vikunni komust Haukar og Stjarnan að samkomulagi að þær Jóna Sigríður Jónsdóttir og Tinna Mark Antonsdóttir mundu ganga til liðs við Hauka.

Báðar léku þær nokkra leiki með Stjörnunni á síðasta tímabili í Landsbankadeildinni en komu svo til Hauka um mitt sumar á láni og léku fimm leiki með Haukum í 1.deildinni.

 

Jóna Sigríður sem er 24ja ára er uppalin hjá Haukum en skipti yfir í Stjörnuna fyrir tímabilið 2004 og þar hefur hún leikið undanfarin ár. Hún leikur oftar en ekki í stöðu miðvarðar og er með gríðarlegt keppniskap og afar fljótur leikmaður sem mun án efa nýtast liðinu gífurlega mikið.

 

Tinna Mark sem er 23ja ára er uppalin að norðan og lék nokkur ár með meistaraflokki Þór/KA/KS en fór svo til Stjörnunnar fyrir tímabilið 2004. Og eins og Jóna hefur hún leikið með Stjörnunni síðan, fyrir utan hálft tímabilið í fyrra þegar hún kom til Hauka að láni. Tinna Mark getur bæði spilað í vörn og á miðjunni.

Þær voru báðar á láni hjá Haukum á síðasta tímabili og hafa ákveðið að koma aftur. Þær hafa báðar mikin áhuga að taka þátt í því starfi sem er í gangi hjá félaginu og hafa þær mikla trú á að takmarkinu sem er að komast upp í Landsbankadeildina náist. Þær munu án efa styrkja liðið sem og hinir fjórir leikmennirnir sem eru nú þegar komnar (Fjóla Dröfn, Linda Rós, Anna Margrét, Dúfa Dröfn) gera og er ég gríðarlega ánægður með að þær séu komnar til liðsins.

Ég fagna því líka að leikmenn vilji taka það á sig að koma úr Landsbankadeildinni til að spila í 1.deildinni með Haukum en ástæðan hlýtur að vera sú að þær hafa allar mikla trú á Haukum,“ sagði Salih Heimir Porca þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Haukum í samtalvi við Haukar.is. Hann segir að það sé mikil breyting á leikmannahópnum sem hann er með í höndunum nú en þegar hann var að þjálfa Hauka síðast fyrir tveimur árum,

Þegar ég var hérna síðast var ég með mjög lítinn hóp á æfingum en núna eru í kringum 25 til 30 leikmenn á æfingum hjá meistaraflokki og 2.flokki svo þetta er allt annað og mikil breyting frá því síðast. Þetta er miklu betra og það er því spennandi tímar framundan hjá Haukum í kvenna knattspyrnunni,“ sagði Salih Heimir að lokum.

Við bjóðum Jónu og Tinnu velkomnar til Hauka. Frekar tíðindi af meistaraflokkum Hauka í knattspyrnu verða birtar hér á síðunni um leið og eitthvað gerist.