Slagurinn um Hafnarfjörðinn

Í kvöld, miðvikudagskvöld, verður fyrsti Hafnarfjarðarslagur tímabilsins hjá meistaraflokki karla í handbolta er FH kemur í heimskókn á Ásvelli. Leikurinn hefst kl. 20:00 og má búast við hörkuleika eins og venjulega en Haukarnir eru taplausir á tímabilinu með 4 sigra úr fyrstu 4 leikjum tímabilsins en FH er með 4 stig úr fyrstu 4 leikjunum. […]

Dagrún Birta endurnýjar samning við knattspyrnudeildina

Dagrún Birta Karlsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við knattspyrnudeild Hauka. Dagrún, sem er uppalin í Haukum, var lykil leikmaður í liði Hauka í Inkasso deildinni í sumar sem endaði í 4. sæti deildarinnar. Dagrún sem er tvítug að aldri tók miklum framförum í sumar og spilaði hún 17 leiki sem miðvörður og skoraði tvö mörk. […]