Selfoss mætir í Schenkerhöllina

Það er leikdagur hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna en í kvöld fá þær Selfoss í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30. Fyrir leikinn eru stelpurnar í 4. sæti Olís deildar kvenna með 14 stig og eru þær 5 stigum á eftir toppliðunum. Á meðan er Selfoss á botni deildarinnar með 4 stig og er í harðri […]

Leikur Kára og Hauka í beinni í kvöld

Annar leikur Hauka í Fótbolti.net mótinu verður í kvöld, kl. 19:00 föstudaginn 18. janúar, og verður sendur út í beinni á Youtube á ÍA-TV rásinni. Haukar léku sinn fyrsta leik á árinu gegn Selfoss um sl. helgi og fóru leikar 1-1 þar sem Oliver Helgi Gíslason skoraði mark Hauka. Slóðin inn á ÍA-TV er https://www.youtube.com/channel/UCnQHvY_UsVTOWKUfy0bKFug   […]

Haukar – Tindastóll í Dominos deild karla í kvöld kl. 19:15

Haukar munu etja kappi við Tindastól í kvöld, fimmtudaginn 17. jan. kl. 19:15 í Schenkerhöllinni. Viðureignir þessara liða hafa alltaf verið gríðarlega skemmtilegar og hafa þessi tvö lið háð harða baráttu síðustu ár og má búast við því sama í kvöld. Haukaliðið hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit í síðustu leikju og hefur […]

Haukar – Valur í Dominos deild kv. í kvöld kl. 19:15.

Í kvöld, miðvikudaginn 16. jan., koma Valsstúlkur í heimsókn í 16 umferð Dominos deildar kvenna. Haukar töpuðu í síðasta leik á móti toppliði KR og vantaði herslumuninn á því að þær næðu í sigur í þeim leik. Ljóst er að leikurinn í kvöld verður gríðarlega erfiður þar sem Valsliðið er vel mannað og hefur tekið […]

Kristófer og Óliver á U16 úrtaksæfingum

Kristófer Jónsson og Óliver Steinar Guðmundsson tóku þátt í úrtaksæfingum KSÍ 4. – 6. janúar sl. Um var að ræða U16 ára landslið karla en þjálfari liðsins er Davíð Snorri Jónasson. Æfingarnar fóru fram í Kórnum og Egilshöll. Vel gert drengir og innilega til hamingju! Áfram Haukar. Félagið mitt.  

Aron og Jóhann semja – Birgir Magnús framlengir

Meistaraflokkur karla hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Inkasso-deildinni næsta sumar en Aron Elí Sævarsson hefur skrifað undir lánssamning við félagið. Aron er 21 árs gamall, hann kemur frá uppeldisfélagi sínu Val. Aron leikur stöðu vinstri bakvarðar en hann hefur leikið meistaraflokksleiki með KH og nú síðast HK. ,,Mig langaði að fá tækifæri til […]

Fullt af Haukafólki í landsliðum Íslands

Það var mikið um að vera hjá ungum Haukakrökkum fyrstu daga ársins en þá voru landsliðsæfingar hjá yngri landsliðum Íslands í handbolta og áttu Haukar fjölmarga fulltrúa í þeim verkefnum. Í U-15 ára landsliði kvenna áttu Haukar 7 fulltrúa en þar æfðu þær Agnes Ósk Viðarsdóttir, Elín Klara Þorkelsdóttir, Hekla Ylfa Einarsdóttir, Mikaela Nótt Pétursdóttir, […]