Meistarakeppni HSÍ á þriðjudaginn 19:30

Fyrsti leikur tímabilsins hjá strkákunum verður á þriðjudaginn kl. 19:30 í Schenkerhöllinni þegar Bikarmeistarar Vals koma í heimsókn í hinum árlega leik Íslands- og Bikarmeistaranna. Strákarnir standa í ströngu þessa dagana þar sem þeir fara svo út til Grikklands á fimmtudaginn og leika tvo leiki í fyrstu umferð Evrópukeppninnar.  

Æfingatafla kkd tilbúinn

Æfingatafla yngri flokka körfuknattleiksdeildar er fullbúinn. Það er verið að ljúka því að ráða þjálfara á mb. 8-10 ára stúlkna og 7-8 flokk stúlkna og eru viðræður við þjálfara á góðu skriði og þetta ætti því að koma í ljós fljótlega. Æfingar yngri flokka hefjast mánudaginn 29. ágúst skv. töflu.  ATH, æfingatöflur gætu tekið einhverjum breytingjum fyrstu […]

Æfingatafla hkd tilbúin

Handknattleiksdeild Hauka er búin að gefa út æfingatöflu fyrir veturinn. Hægt er að nálgast hana hér að neðan. Taflan tekur gildi mánudaginn 29. ágúst. Æfingatafla handknattleiksdeildar veturinn 2016 – 2017

Strákarnir mæta Leikni F. á morgun, laugardag

Haukar mæta Leikni F. í 17. umferð Inkasso deildarinnar á morgun, laugardag, og fer leikurinn fram á Ásvöllum kl. 14:00. Okkar strákar eru sem stendur í 7. sæti deildarinnar með 20 stig en Leiknir Fáskrúðsfirði eru í neðsta sæti deildarinnar með 12 stig. Þrátt fyrir það má búast við hörku leik enda hafa leikir í […]

Hafnarfjarðarmótið byrjar á fimmtudaginn

Hafnarfjarðarmótið hefst á fimmtudaginn kl. 18:00 í Strandgötunni. Leikirnir verða allir sýntir beint á SportTV.is Leikjaplanið fyrir helgina lítur svona út:   Fimmtudaginn 18 ágúst. FH – UMFA    Kl.  18:00 Haukar – Valur.  Kl.  20:00 Föstudagur 19 ágúst Haukar – UMFA   Kl.  18:00 FH – Valur  Kl.  20:00 Laugardagur 20 ágúst UMFA – Valur  kl. […]

Þriðji sigurinn í röð hjá strákunum.

Haukar unnu sinn þriðja leik í röð þegar liðið sigraði Þór frá Akureyri 3-2 í Inkasso deildinni. Gunnar Gunnarsson, sem var valinn maður leiksins af meistaraflokksráði Hauka, gerði fyrsta mark leiksins og þá skoraði Aron JP tvö mörk, þar af annað úr víti. Með sigrinum eru okkar strákar komnir í 7. sæti deildarinnar með 20 […]

Haukar – Þór í kvöld klukkan 18:15

Haukar mæta Þór í Inkasso deildinni á Ásvöllum kl. 18:15 í dag, fimmtudag! Okkar strákar eru sem stendur í 8. sæti deildarinnar með 17 stig en Þór er í 5. sæti með 22 stig. Með sigri komumst við í 7. sæti deildarinnar, stigi yfir Fram. Strákarnir búast við þér í stúkunni í kvöld þar sem þú öskrar […]

Næstu heimaleikir í fótboltanum.

Haukar mæta liði Augnabliks í B riðli 1. deildar kvenna í kvöld, og fer leikurinn fram á Ásvöllum kl. 19:00. Okkar stúlkur eru sem stendur í 2. sæti riðilsins með 24 stig en Augnablik er í þriðja sæti með 20 stig. Um er að ræða næst síðasta heimaleik okkar stúlkna í B riðlinum í sumar […]