YU Strovolos – Haukar mfl.ka.

Það var boðið upp á sannkallaða flugeldasýningu á Ásvöllum í kvöld. Strákarnir gjörsigruðu gestina frá Kýpur 43-16 í seinni leik liðanna í Evrópukeppni bikarhafa. Strákarnir okkar byrjuðu af krafti og ætluðu greinilega að gefa sig alla í leikinn, og höfðu þeir árangur erfiðis síns og unnu glæsilegan sigur eins og fyrr segir. Mótstaðan var kannski […]

Haukar-Fylkir/ÍR mfl.kv

Stelpurnar okkar áttu ekki í vandræðum með gestina úr Fylki/ÍR á Ásvöllum í dag og unnu góðan sigur 38-16. Þær tóku forystuna strax í upphafi og höfðu leikinn algjörlega í höndum sér allt til loka. Staðan í hálfleik var 15-6 og juku þær muninn í seinni hálfleik og sigruðu með 22 mörkum. Markahæst var Hanna […]

Haukar-Fylkir/ÍR

Leikurinn hjá stelpunum er kl. 15.30 í dag á Ásvöllum (ekki kl. 16.30 eins og sumstaðar er auglýst). Tilvalið að hafa langan dag með fjölskyldunni á Ásvöllum, stelpurnar kl. 15.30 og síðan strákarnir kl. 18.00 í Evrópukeppninni. Áfram Haukar

Haukar YU Strovolos mfl.ka.

Haukar sigruðu gestina frá Kýpur 31-20 á Ásvöllum í kveld. Leikurinn byrjaði nokkuð jafnt en Haukarnir voru fljótir að ná yfirtökum og komust gestirnir aldrei yfir. Strákanir okkar slökuðu þó of mikið á í seinni hluta fyrri hálfleiks og náðu gestirnir að jafna en Haukarnir löguðu þó stöðuna aðeins fyrir hálfleik í 16-13. Strákarnir komu […]

Evrópukeppni Bikarhafa

Nú fer að styttast í leikina í Evrópukeppninni við Youth Union Strovolos frá Kýpur. Sá fyrri verður á föstudaginn kl. 20.00 og sá síðari á laugardaginn kl. 18.00. Báðir leikirnir fara fram á Ásvöllum. Ekki vitum við mikið um styrkleika þeirra Kýpurbúa en eins og allir vita þá er enginn leikur unninn fyrirfram og verða […]

Víkingur-Haukar mfl.ka.

Stákarnir okkar gerðu góða ferð í höfuðborgina, er þeir unnu Víking 24-33 í Essó deildinni í kvöld. Heimamenn skorðu fyrsta markið úr víti og var það eina skiptið sem þeir voru yfir í leiknum. Staðan í hálfleik var 10-18 fyrir okkur. Leikurinn var frekar auðveldur fyrir okkar menn og sýndu þeir oft góðar fléttur í […]

16-liða úrslit SS bikar karla

Dregið var í 16 liða úrslitum SS-bikarsins í dag. Haukar heimsækja Aftureldingu í Mosfellsbæinn. Drátturinn var annars þessi: Breiðablik – GróttaKR 2 Selfoss – GróttaKR UMFA – HAUKAR Fram – Þór Ak. ÍR 2 – Fylkir KA – ÍR Valur – Stjarnan Valur 2 – HK Leikirnir eiga að fara fram 16. október

GróttaKR í Evrópukeppni

Við Haukar óskum GróttuKR góðs gengis í Evrópukeppninni en þeir spila við úkraníska liðið Switlotechnik núna um helgina. Fyri leikurinn er í dag kl. 16.00 og sá síðari á morgun kl. 20.00.

GróttaKR-Haukar mfl.kv.

Það var frekar dapur leikurinn hjá stelpunum á Nesinu í kvöld er þær töpuðu 26-25 fyrir GróttuKR. Leikurinn var jafn til að byrja með, liðin skiptust á að skora, þar til Haukastelpur sigu aðeins framúr og var staðan 11-15 í hálfleik. GróttaKr kom grimmari til seinni hálfleiks, en stelpurnar okkar voru þó alltaf skrefinu á […]