2-4 sigur Haukar á ÍR

Sunnudaginn 22. mai spiluðu Haukakonurnar við ÍR-inga…

Þetta var hörkuleikur og var m.a. einn leikmaður Hauka borinn útaf á börum!! Þessi leikmaður var enginn annar en Linda Rós Þorláksdóttir, þekktur leikmaður í Haukum og er m.a. talinn einn efnilegasti leikmaður í Haukaliðinu í dag. En hún fékk slæmt högg á hnéð í þessum leik….

Leikurinn fór 2-4 Haukum í vil, mörk leiksins áttu: Aníta Björk, 2 mörk og Björg Magnea, 2 mörk, ÍR skoraði 2 mörk ekki er vitað hver skoraði þau mörk….

Þetta var góður leikur og frábær byrjun á frábæru sumari!!!!

ÁFRAM HAUKAR!!!