Haukastúlkur lönduðu sínum þriðja sigri í röð í kvöld er þær tóku á móti Hamri í kvöld en lokatölur leiksins voru 69-53.
Lele Hardy var atkvæða mest að vanda en lét lítið fyrir sér fara í fyrri hálfleik þar sem Dagbjört Samúelsdóttir leiddi vagninn í stigaskorun.