Þrír efnilegustu Haukarnir endurnýja samning

Emil, Samúel, Haukur og ÖrnEndurnýjaðir hafa verið samningar við þrjá af efnilegustu leikmönnum Hauka í meistaraflokki þá Emil Barja, Hauk Óskarsson og Örn Sigurðarson til 2 ára. Við undirritun samninga kom fram hjá Samúel Guðmundssyni formanni Körfuknattleiksdeildar Hauka að samningarnir við Emil, Hauk og Örn væru mikið ánægjuefni fyrir Hauka því með því væru Haukar að tryggja sér þann kjarna leikmanna sem byggt verður áfram upp í kringum á næstu árum. 

 Með samningunum væri einnig verið að verðlauna þessa leikmenn fyrir frábæra frammistöðu og miklar framfarir sem þeir hafa sýnt í vetur. Enda sópuðu þessir leikmenn til sín verðlaunum á lokahófi meistaraflokks á dögunum. 

Samið hefur verið við Svein Ómar Sveinsson um að hann verði með leikmenn meistaraflokks í styrktarþjálfun í sumar auk þess sem Pétur Ingvarsson mun verða með strákana á stífum æfingum við að undirbúa liðið sem allra best undir næsta tímabil þar sem stefnan er að gera enn betur en á síðasta keppnistímabili.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…