Þjálfarar óskast

HaukarKörfuknattleiksdeild Hauka óskar að ráða til starfa yfirþjálfara fyrir alla yngri flokka félagsins ásamt að kenna við íþróttaakademíu í Flensborg. Leitað er að einstaklingi sem hafi mikla reynslu af þjálfun í körfuknattleik. Æskilegt er að viðkomandi hafi íþróttakennaramenntun eða hafi lokið viðurkenndum þjálfunarnámskeiðum. 
 
Þá er einnig leitað að þjálfurum fyrir nokkra af yngri flokkum deildarinnar. 
 
Umsóknum skal skila til íþróttastjóra Hauka Guðbjargar Norðfjörð sem einnig gefur upplýsingar um störfin eigi síðar en 8.júní n.k. Einnig má senda umsókn rafrænt á netfangið gudbjorg@haukar.is