Haukar leika í kvöld gegn Hamri í Eden mótinu í körfubolta. Leikurinn hefst kl. 20:15 og skerst úr um hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari á mótinu af þeim leik loknum. Hamar er taplaust en Haukar töpuðu fyrir FSu á föstudaginn, 65-80, og verða að sigra í kvöld til að eiga séns. Liðið þarf einnig að treysta á hagstæð úrsilt úr leik Þórs Þorl. og FSu og treysta á að Þór sigri FSu.