Öruggur sigur Hauka í Grindavík

Í gær áttust  við Grindavík og Haukar í 9. umferð IEX-deildarinnar. Haukar sigruðu leikinn örugglega 41-61 og sitja nú í 3.-4. sæti ásamt KR-ingum.

Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og gekk báðum liðum erfiðlega að skora. Haukar höfðu þó 9 stiga forystu í hálfleik 18-27. Í þriðja leikhluta náðu Grindvíkingar að saxa á forskot Haukastelpna og náðu á minnka muninn mest í 4 stig.

Í fjórða og síðasta leikhlutanum kom hins vegar allt annað Haukalið til leiks og skoruðu stelpurnar 18 stig í röð og var Katie Snoddgrass þar fremst í flokki en hún setti niður hverja körfuna á fætur annarri. Lokastaðan eins og áður sagði 41-61 fyrir Hauka.

Tölfræði

Katie Snodgrass 30 stig, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 8 stig/ 7 fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 6 stig