Æfingaleikir sl. vikur

Meistaraflokur karla hefur spilað fjöldan allan af æfingaleikjum að undanförnu. Í gær, laugardaginn 26. febrúar, lék liðið við Sindra frá Hornafirði og lauk leiknum með 10-2 sigri Hauka. Ómar Karl skoraði fjögur mörk líkt og Hilmar Rafn, en Betim og Kristófer settu sitt hvort markið.
Úrslit úr öðrum æfingaleikjum sem háðir hafa verið í janúar og febrúar eru eftirfarandi:
Haukar – Fjölnir 0 – 0
Haukar – Víkingar Ólafsvík 2-0
Haukar b – ÍH 1-3
Haukar – Afturelding 4-3
Stjarnan – Haukar 4-3
Haukar – Selfoss 1-0
Haukar – ÍBV 4-4

Fyrsti opinberi leikur ársins verður 13. mars klukkan 13:00 í Reykjaneshöllinni gegn ÍR í Deildarbikarnum.