Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

3.flokkurinn leikur til úrslita á Ásvöllum á morgun

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÞað er stór dagur hjá Haukum á morgun þegar 3.flokkur karla í knattspyrnu leikur til úrslita í Visa-bikar karla. Leikurinn fer fram klukkan 12:00 að Ásvöllum og eru andstæðingarnir Breiðablik úr Kópavogi.

3.flokks árgangurinn hefur slegið í gegn undanfarin ár og var til að mynda Íslandsmeistari í 4.flokki fyrir tveimur árum og hafa nú tryggt sér upp í A-riðil á næsta ári en þeir lentu í 2.sæti í B-riðlinum í sumar. Þjálfarar 3.flokks karla eru þeir Árni Hjörvar Hilmarsson og Þórhallur "kóngur" Dan Jóhannsson.

Lesa meira...
 

Sigur á Val í Ragnarsmótinu

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar spiluðu við Val í Ragnarsmótinu í gær. Lokatölur voru 23-17 fyrir Hauka. Haukar voru betri aðilinn og má segja að þetta hafi verið öruggur sigur allan tímann. Liðheildin var góð og voru okkar menn að spila frábæra vörn og einnig var markvarslan frábær.  Þar með hafa Haukar tryggt sér réttinn til að keppa til úrslita í Ragnarsmótinu og fer leikurinn fram á laugardag og hefst  kl: 16:00.

Aron Rafn varði 17 bolta og Birkir Ívar 8.

Markaskorarar voru: Guðmundur Árni 5 Þórður Rafn 5 Sveinn 3 Freyr 3 Einar Örn 2 Björvin, Tjörvi, Jónatan, Gísli Jón og Stefán Rafna allir með 1 mark. Vonum að sem flestir mæti á Selfoss á laugardag og hvetji strákana við að vinna fyrsta bikarinn á tímabilinu.

 

Úrslitaleikur í Visa Bikar karla

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÚrslitaleikur Vísa-bikar KSÍ 3. flokkur karla.

Á morgun kl. 12.00 verður haldinn á Ásvöllum úrslitaleikurinn í Vísa bikarkeppni KSÍ, 3. flokkur.  

Liðin sem keppa til úrslita eru Haukar og Breiðablik.

Öllum Haukamömmum er boðið á þennan stórleik og nú hvetjum við okkar menn.

Áfram HAUKAR!!!

 

 

 

Haukar á hraðmóti Njarðvíkur

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Bikarmeistarar Hauka í körfubolta taka þátt á Hraðmóti í Njarðvík nú á næstu dögum. Mótið er haldið í tengslum við Ljósanótt eru átta lið skráð til leiks.

Auk Hauka verða á mótinu Njarðvík, Hamar, Grindavík, U-16 landsliðið, Snæfell, Fjölnir og að lokum íslandsmeistarar KR.

Haukar hefja leik í kvöld og leika gegn Hamri kl. 17:45.

Lesa meira...
 
Borði

Vefpóstur

Nafn:
Lykilorð:

Könnun

Hvernig finnast þér breytingar á útisvæðinu á Ásvöllum
 
Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)