Við tippum annan í jólum.

HaukarAð venju var mætt vel í getraunaleik Hauka síðastliðinn laugardag og gekk liðum ágætlega. Töluvert var um að lið náðu 10 leikjum réttum og einhverjir af þeim skiluðu inn sínum röðum og fengu vinning. Opið verður í getraunaleiknum n.k.laugardag, annan í jólum, húsið opnar kl 10.00  og verður opið til 14. 00. Haukar er það félag sem er með flest lið af öllum íþróttafélögum í getraunaleik og erum við afar stolt af því. Talsverðar breytingar hafa orðið á stöðu liða í riðlum og ljóst að allir eiga jafnar sigurlíkur. Enn er hægt að skrá sig til keppni og að sjálfsögðu eru allir velkomninr í kaffi, kíkja á fólkið og sjá hvernig þetta fer fram. Glæsilegir vinningar eru í leiknum og eru fyrstu verðlaun utanlandsferð. Staðan í leiknum er uppfærð í hverri viku á heimasíðunni  sjá hér til vinstri: Getraunir Haukar 221.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og hlökkum til að sjá ykkur annan í jólum.