Valitor býður á leik

Sannkölluð körfubolta veisla verður á Ásvöllum á miðvikudaginn þegar Haukar mæta Snæfell í Domino‘s deildum karla og kvenna. Valitor, sem nýverið flutti höfuðstöðvar sínar í Hafnarfjörð, ætlar að bjóða öllum frítt á leikina og því kjörið tækifæri til að mæta og horfa á flottan körfubolta.

Bæði lið Hauka eru á góðu skriði og unnu síðustu leiki sína nokkuð sannfærandi. Meistaraflokkur kvenna hefur unnið síðustu tvo leiki sína eftir brösótta byrjun og meistaraflokkur karla hefur unnið tvo af þremur leikjum sem það hefur spilað. Síðustu leikir Haukaliðanna á heimavelli hafa verði sannkallaðir naglbítar og því ljóst að enginn verður svikinn að gera sér ferð á Ásvelli.

Grillið verður opið milli leikja og hefur Gunni grillari fengið með sér valinkunna menn til að aðstoða sig. Marel Örn Guðlaugsson, leikjahæsti leikmaður Íslandsmótsins frá upphafi, verður Gunna til halds og trausts og Gunnar Svanlaugsson, formaður og grillmeistari Snæfellinga, mun einnig standa vaktina. Að sjálfsögðu er grillið opið fyrir alla sem vilja og bjóðum við Snæfellinga sérstaklega velkomna upp á pall.

Veislan byrjar kl. 18:00 með leik Hauka og Snæfells í Domino‘s deild kvenna og leikur karlaliðsins hefst kl. 20:00