Unglingaflokkur karla spilar til úrslita um Íslandsmeistaratitil í dag – sýndur beint á netinu.

drengjafl íslandsmUnglingaflokkur karla spilar í dag, sunnudaginn 14. maí kl. 16:00, til úrslita um Íslandsmeistaratitil og leikur gegn KR á Flúðum.
Hægt er að fylgjast með leiknum á youtube rás kkí, með því að ýta hér

Strákarnir spiluðu gegn Breiðablik í undanúrslitum og unnu öruggan 20 stiga sigur og náðu mest 28 stiga forystu í síðari hálfleik. Vörnin var gríðarlega sterk og komust Blikarnir lítið áleiðs í sínum sóknarleik. Haukalið hitti frekar illa í leiknum en það kom ekki að sök þar sem vörnin hélt. Allir 12 leikmenn spiluðu í leiknum og stóðu allir sig vel.

10. flokkur stúlkna spilaði gegn Grindavík í undanúrslitum og tapaði í hörku leik. Stelpurnar sýndu góða baráttu og spiluðu mjög vel í leiknum. Þær voru smá stund í gang og skoruðu lítið í fyrsta leikhluta en eftir að hafa hrist aðeins mesta stressið af sér fór sóknin að ganga betur. Grindavík hélt 3-6 stiga forystu í fyrri hálfleik en í þeim síðari náðu Haukastelpurnar að jafna leikinn og er síðasti leikhluti var að byrja þá var staðan jöfn, 37-37.  Grindvíkingar voru sterkari í þeim fjórða og tapaðist leikurinn með 7 stigum, 51-44. Stelpurnar geta borið höfuðið hátt eftir leikinn.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…