Unglingaflokkur karla bikarmeistari

Haukur Óskarsson var valinn maður leiksins en hann var sjóðandi í 4. leikhlutaStrákarnir í unglingaflokki karla urðu bikarmeistarar í dag þegar þeir lögðu lið Hamrs/Þórs að velli 101-78 í úrslitum en leikið er á Ásvöllum.

Haukastrákar voru sterkari allan leikinn en þeir leiddu allan leikinn og unnu sanngjarnan og öruggan sigur á sunnlendingum.

Haukar Óskarsson var valinn maður leiksins en hann var sjóðandi í fjórða leikhluta þegar hann setti hverti þriggja-stiga skotið ofaní. Endaði hann með 28 stig.

Örn Sigurðarson var öflugur með 21 stig og 13 fráköst en allir leikmenn liðsins stóðu sig vel í leiknum.

Heimasíðan óskar strákunum og Ívari til hamingju með titilinn og eru þeir því ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar.

Umfjöllun um leikinn á Karfan.is

Tölfræði leiksins